UppseltÍslensk Hönnun · Sjálfbærni · Fiskileður
Íslensk hönnun úr fiskileðri
Fleki glasamottur eru handunnar úr íslensku fiskileðri, hvert stykki er einstakt, handgert og 100% íslensk hönnun.
Skoða vörurVörur
Skoða allt →Sagan okkar
Íslenskt fiskileður
Hugmyndin að Fleka kviknaði í heimsókn í Sjávarklasann þar sem við sáum fiskileður í vörum. Okkur fannst efnið bæði spennandi og einstakt, það er íslenskt, sjálfbært og oft vannýtt hráefni úr sjávarútvegi.
Glasamotturnar eru gerðar úr tveimur efnum, fiskileðri og korki, sem eru límd og pressuð saman. Fiskileðrið er efra lag mottunnar og gefur henni sérstaka áferð og útlit, en korkurinn er neðra lagið sem verndar borðfleti og hjálpar mottunni að liggja stöðugt.
Fiskileðrið kemur frá Nordic Fish Leather á Vestfjörðum. Efnið er unnið úr húð fiska sem þegar eru veiddir til matvælaframleiðslu, aukaafurð sem oft er hent. Hvert stykki hefur náttúrulegt hreistramynstur sem gerir hverja mottu einstaka í útliti. Engar tvær eru eins.
100%
Íslenskt hráefni
4 stk
Í hverjum pakka
Nordic Fish Leather
Hráefnisaðili
Vestfirðir
Uppruni leðursins
Stofnendur
Um Fleka
Fimm nemendur í Verzlunarskóla Íslands, þátttakendur í verkefninu Ungir Frumkvöðlar á vegum Junior Achievement.
Stefanía Úlfarsdóttir
Framkvæmdarstjóri
Stefanía gegnir hlutverki framkvæmdarstjóra og ber ábyrgð á heildarstjórn fyrirtækisins. Hún sér um að skipuleggja verkefnið, halda utan um vinnu hópsins og tryggja að allir þættir verkefnisins gangi vel fyrir sig.
Anton Sigurðarson
Fjármálastjóri
Anton sér um fjármál fyrirtækisins og ber ábyrgð á fjárhagslegri skipulagningu. Hann heldur utan um kostnað, áætlanagerð og fjármál og tryggir að reksturinn sé fjárhagslega skynsamlegur.
Sandra Kristín Tandradóttir
Markaðsstjóri
Sandra ber ábyrgð á markaðsmálum fyrirtækisins. Hún sér um að kynna vöruna, greina markhópinn og vinna að markaðsrannsóknum til að skilja þarfir og viðhorf neytenda.
Steindór Örn Hannesson
Sölustjóri
Steindór ber ábyrgð á sölu og dreifingu vörunnar. Hann vinnur að því að finna leiðir til að selja glasamotturnar og sér um samskipti við mögulega kaupendur.
Úlfur Geir Rósinkranz
Framleiðslustjóri
Úlfur ber ábyrgð á framleiðslu vörunnar og skipulagningu framleiðsluferlisins. Hann tryggir að glasamotturnar úr fiskileðri séu framleiddar á vandaðan og skilvirkan hátt.








